Orlofsuppbót

Orlofsuppbót skv. kjarasamningum VR er kr. 51.000 fyrir árið 2020 m.v. fullt starf.  Orlofsuppbót skal greiða eigi síðar en 1. júní 2020.

Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattar og skyldur, félagsgjöld og lífeyrissjóður greiðast af orlofsuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á orlofsuppbótina.

Hér að neðan getur þú reiknað út orlofsuppbótina þína.

Hægt er að reikna með unnum tímum og er þá 1.743,75 unnar stundir hjá afgreiðslufólki og 1.653,75 unnar stundir hjá skrifstofufólki fullt ársstarf. Skv. kjarasamningi VR og FA er fullt ársstarf 1.597,5 stundir ef reiknað er með unnum tímum.

Nánari upplýsingar