Vinnutími unglinga 15-18 ára

  • Vinnutími má vera 8 klst. á dag eða 40 klst. á viku á þeim tíma þegar skóli er ekki.
  • Á skóladegi mega 15 ára unglingar vinna 2 klst. á dag eða 12 klst. á viku að hámarki.
  • Unglingar mega aldrei vinna frá kl. 24:00-04:00.
  • Hvíldartími unglinga er 12-14 klst. á sólarhring. 14 klst. fyrir 13-14 ára og fyrir 15 ára börn
    í skyldunámi en 12 klst. fyrir unglinga 15-17 ára.

Almennt um vinnu barna og unglinga

  • Börn yngri en 13 ára mega ekki vinna langan tíma á hverjum degi og þá aðeins við mjög létt störf eins og t.d. við menningu, listir og íþróttaviðburði.
  • Börn á aldrinum 13-14 ára mega vinna létt og hættulaus störf eins og t.d. þjónustustörf.
  • Unglingar á aldrinum 15-17 ára mega vinna flest störf nema þau sem teljast hættuleg eða líkamlega mjög erfið. Þeir mega ekki vinna með hættuleg efni eða vélar.
  • Næturvinna barna og unglinga er bönnuð.
  • Samkvæmt lögum eiga börn og unglingar (fram til 18 ára aldurs) að fá tvo frídaga í viku og 12-14 tíma hvíld á sólarhring (14 klst. fyrir 13-14 ára og fyrir 15 ára börn í skyldunámi en 12 klst. fyrir unglinga 15-17 ára).
  • Vinna barna og unglinga skal fara fram undir eftirliti einstaklings sem er orðinn 18 ára.
  • Foreldrar hafa eftirlitsskyldu með börnum sínum þegar þau fara á vinnumarkað. Börn til 18 ára aldurs hafa ekki heimild til að skrifa undir ráðningarsamning nema með samþykki foreldra

Sjá ítarlegri upplýsingar um vinnu ungs fólks og algengar spurningar og svör.

VR - Skóli lífsins

Allt sem þú þarft að vita um vinnumarkaðinn en hefur aldrei nennt að spyrja um í einu netnámskeiði!

  • Hvar áttu að byrja atvinnuleitina?
  • Það sem þú þarft að hafa á hreinu í starfsviðtalinu
  • Allt um veikindadaga og uppsagnarfrest
  • Hvenær ertu að vinna og hvað áttu að fá borgað?
  • Af hverju fá konur lægri laun en karlar fyrir sömu vinnu?